Það er orðið kalt í veðri núna og snjórinn farinn að falla.... bla bla bla hljómaði eins og ljóð.
En þá er það nánast ákveðið, ég og Íris ætlum að fá okkur hund og ekki af minni gerðinni skal ég segja ykkur. Ætlum að fá okkur Rottweiler eða tröllvaxinn Labrador eins og Guffi bróðir á!
Uhh... neij, við ætlum reyndar að fá okkur Chihuahua krýli sökum kreppunnar

Guffi ekkert bögg takk

Svo fæ ég ágætis æfingu í föðurhlutverkinu um jólin því ég mun passa tvo litla hunda þá sem tengdó á. Verð orðinn reiprennandi hunda-alari eftir þessa einu viku.
Bíllinn minn:
*Það er sprungið dekk á honum og ég nenni ekki að laga það...
*Öll hin dekkin eru eiginlega líka ónýt en ég nenni ekki að laga þau...
*Það kemur ekkert viðvörunarhljóð ef ég gleymi að slökkva ljósin í bílnum nema ég opni farþegahurðina! Hjálpar ekki mikið og ég nenni ekki að laga það...
*Rúðurnar skrúfast upp þegar ég ýti á takkann en stundum fara þær alveg sjálfar niður aftur og aftur og aftur og ég nenni ekki að laga það...
*Rúðuþurrkan hægra megin er ónýt, kannski ég lagi það...
*Hann er alltaf fullur af drasli af því að ég nenni ekki að laga til í honum...
*Það er rallýhljóð í bílnum af því að það er gat á pústinu, laga það ekki...
*Hann er alltaf drulluskítugur, af því að ég nenni ekki að þrífa hann...
*Hann startaði sér einu sinni sjálfur þegar ég var kominn 50 metra frá honum, hvernig lagar maður það?...
*Hann leitar grunsamlega mikið til vinstri, hugsanlega dekkin eða það að hann vill VG í ríkisstjórn, þarf að laga það?...
*handbremsan er ónýt, óþarfi að laga það, hann er sjálfskiptur!...
*Vinstra framljósið dettur stundum út þegar ég fer yfir hraðarhindrun en lagast svo þegar ég fer yfir næstu. Hann lagar sig sjálfur...
Sem sagt, fínasti bíll til sölu. Sett á hann 700 þúsund, en fæst á tilboði aðeins 150 þúsund og þú sparar 550 þúsund krónur